Hljómsveitin Ú.F.F
Heimasíður Meðlima
06.12.2006 12:33:56 / uffuff

Ný dagskrá !!!

Já krakkar mínir  . . nú verður rokkað um jólin !!!!

Ú.F.F mun spila á krakkaballi á Kaffi Krók fimmtudagskvöldið 28.desember og verður efalaust sama góða stemningin og síðasta ár, þegar við vorum að taka okkar fyrstu skref.

Síðan kvöldið eftir , þann 29.des verðum við á Mælifelli og verður það sveitt og feitt ball og ókeypis verður inn, bjórtilboð og við vitum ekki hvað og hvað.

Farið ekki í jólaköttinn og mætið í dansgallanum !

Rokkkveðjur

- Binni

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 12:13:10 / uffuff

BALL !!!

Hljómsveitin Ú.F:F mun spila á Mælifelli föstudagskvöldið 29.desember næstkomandi !!!!

Dagskráin byrjar um 22:00 leytið þegar Binni stígur á stokk og spilar á kassagítarinn í 2 tíma með tilheyrandi ölæði og skemmtun ,en rétt eftir miðnætti munu Ú.F.F koma fram og spila stanslaust til 03:00 ... ef ekki lengur ;)

Við lofum sveittri stemningu að vanda.

FRÍTT INN og 18 ára aldurstakmark.



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 14:37:28 / uffuff

Ball og fleira

Fyrir hönd Ú.F.F vil ég þakka öllum þeim sem sáu sér fært um að mæta á ballið með okkur síðastliðið laugardagskvöld .......... við skemmtum okkur konunglega og ég vona að þið hafið skemmt ykkur jafnvel ... ef ekki betur :)

En að öðrum fréttum , þá mun Ú.F.F líklega spila á Mælifelli á milli jóla og nýárs og verður vonandi sama snið á ballinu... þ.e frítt inn og skemmtilegheit.

Kærar kveðjur.

Binni

P.s --> Ef einhver á myndir frá ballinu á Mælifelli þá er hinn sami beðinn vinsamlegast um að senda þær á mailið binni29@gmail.com eða binni29@hotmail.com.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:53:07 / uffuff

VIÐ ERUM Á LÍFI !!!

BALL MEÐ Ú.F.F , LAUGARDAGSKVÖLDIÐ

 11.NÓV, Á MÆLIFELLI, FRÍTT INN , 18 ÁRA

 ALDURSTAKMARK.

ALLIR SEM KUNNA AÐ DANSA AÐ MÆTA !!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 22:47:41 / uffuff

17.júní

Ú.F.F spilar ásamt Sense, Hip Razical og Sixties á Faxatorginu fyrir framan KB Banka á 17.júní og byrja tónleikarnir um 20:30 leytið.

Ú.F.F stígur á sviðið síðast og spilar langt fram eftir kvöldi !!!

Hafið það gott og látið sjá ykkur !!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 23:33:39 / uffuff

Árshátíð !

Vil bara þakka ykkur krökkum í 8.9. og 10.bekk fyrir frábæra skemmtun í gær á Árshátíðinni hjá ykkur.

Þið voruð til fyrirmyndar :)

Takk fyrir mig.

Binni

P.S. Kvittið fyrir ykkur ef þið kíkið hér inn á síðuna takk

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 07:35:56 / uffuff

Spilerí í kvöld !

Langt síðan síðast !

Allavega þá erum við að fara að spila á Árshátíð Friðar (8.9. og 10.bekkur) í kvöld í Íþróttahúsinu og ættu ferlegheitin að byrja um hálf níu - níu leytið og standa yfir langt fram eftir kvöldi.

Við höfum verið að basla við að setja saman program, þar sem þetta verður fyrsta "heila" ballið sem við spilum á og hlökkum við mikið til, þetta verður ekkert nema gaman !

Við vonumst bara til að sjá sem flesta krakka þarna .

Lifið heil.

-Binni

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 13:15:56 / uffuff

Ball trallalall...

Eftir miklar vangaveltur og breytingar. .. þá verður 16 ára ball með Kung Fu í Miðgarði á morgun ... föstudagskvöldið 31.mars.

Við í Ú.F.F munum sjá um upphitun , en þetta verða einungis einhver 5 lög eða svo ... þannig að ég hvet alla til að mæta tímalega í Miðgarð að hlýða á okkur.

Lifið heil.

Binni

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 15:57:11 / uffuff

Næstu verkefni !!!

Músíktilraunir fóru kannski ekki alveg eins og við vorum búnir að vona, en við skiluðum ágætis frammistöðu og erum nokkuð sáttir við hana.

Mogginn vildi meina að lagavalið hjá okkur hefði ekki verið gott, en hrósuðu hljóðfæraleik.

Við þökkum auðvitað öllum þeim sem komu að horfa á okkur í Loftkastalanum. Takk kærlega :)

En næsta verkefni er Árshátíð Friðar í íþróttahúsinu þann 19.apríl... ég vona að við sjáumst sem flest þar í ógeðslega miklu stuði.

Ú.F.F verða vonandi að spila eitthvað um páskana líka !

Thank you very much...


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 12:25:37 / uffuff

MÚSÍKTILRAUNIR !!!

Ég vil biðja alla velunnara Skagafjarðar og vini og kunningja að koma í Loftkastalann á föstudagskvöldið og styðja við okkur í Hljómsveitinni Ú.F.F !!! Húsið opnar klukkan 18:00 , eða réttara sagt , miðasalan byrjar þá, og um að gera að fjárfesta í miða sem fyrst. Það kostar aðeins 700 krónur á þetta , sem er nú ekki mikið fyrir að hlusta á góða tónlist. Áhorfendur velja nefnilega eina sveit áfram, og dómnefnd eina. Þannig að við í Ú.F.F þurfum að fá eins mikinn stuðning og við mögulega getum, því við verðum að keppa við Reykjavíkursveitir sem geta dregið með sér fullt af áhorfendum.

Endilega kíkið á okkur á föstudagskvöldið í Loftkastalanum. Ef þið hafið einhverjar spurningar, þá er bara að kíkja á www.musiktilraunir.is eða bara spyrja mig !

Með fyrirfram þökk.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 12:08:17 / uffuff

Hey ó

Hey hey .... Nei við erum ekkert hættir.

Við höfum verið í smá pásu núna og meðal annars tekið smá upp í stúdíó.

En nú er komið að því að við spilum fyrir ykkur.

Ú.F.F mun spila á Árshátíð NFNV í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið ásamt Á móti sól. Við hvetjum alla nemendur til þess að koma og sýna á sér kæti og skemmta sér með okkur , því við ætlum að skemmta þeim.

Síðan má ekki gleyma Músíktilraunum , en við höfum fengið það staðfest að við verðum að keppa föstudagskvöldið 24.mars um 20:00 leytið. Við munum auðvitað koma með nánari upplýsingar um hvar og hvernig þið getið séð okkur þar :)

En vonandi sjáum við ykkur flest á árshátíð á laugardagskvöldið, því þar verður blastað rokkinu !!!

Sjáumst.

-Binni

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 16:25:10 / uffuff

Músíktilraunir !!

Hljómsveitin Ú.F.F mun spila á Músíktilraunum , en það fékkst staðfest í dag ! :)

Við munum reyna okkar besta til að koma Skagfirskri rokktónlist á kortið !

Dagsetningar verða auglýstar síðar !

Kveðja.

Binni

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 12:13:52 / uffuff

Dagskráin hjá Ú.F.F

Komiði öll sæl og blessuð !

Það ætti að verða nokkuð þétt dagskrá hjá okkur næstu vikurnar. Í fyrsta lagi má nefna það að Hljómsveitin Ú.F.F ætlar að vera með í söngkeppninni í FNV sem verður haldin 1.mars (að mig minnir). Við erum aðallega með bara til þess að fylla upp í dagskránna þarna , því það voru víst svo fáir sem skráðu sig í þessa blessuðu keppni .... því miður.

Síðan á morgun þá hefjast skráningar í Músíktilraunir og munum við í Ú.F.F að sjálfsögðu reyna að komast að í þeirri ágætis keppni. Maður verður að vera memm :)


Þannig að þetta ættu að verða spennandi vikur.

Hafið það gott og gangi ykkur vel í Miðannaprófum.

- Binni

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 14:04:29 / uffuff

Tónleikar !!

Ú.F.F er að spila ásamt Sense, Geira og Helga Sæmundi á styrktarkvöldi fyrir Krabbameinssjúk börn, sem nemendur í frumkvöðlafræði í FNV eru að setja saman.

 

Húsið opnar klukkan 20:00 og kostar 500 krónur inn.

 

Allir að mæta og leggja góðu málefni lið.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 20:06:01 / uffuff

Nýjar myndir !!

Það voru alveg heilar 3 nýjar myndir að detta inn í myndaalbúmið okkar, sem finna má í tenglum til vinstri.

Af Ú.F.F er það að frétta að við erum að fara að hella okkur í að endurbæta og lengja programið okkar svo við getum farið að halda okkar eigin böll, því við ætlum ekkert að vera að hita neitt upp mikið lengur.

Svo erum við komnir með smá af frumsömdu , sem er gott ,því við þurfum það þegar við tökum þátt í Músíktilraunum í mars mánuði. Við munum segja ykkur frá öllu sem því tengist þegar nær dregur.

Kveðja:

Binni

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2